Snjalllásar eru af ýmsum gerðum og hafa ýmsa kosti, og ókosti.
Við höfum í nokkur ár skoðað og spurt og prófað og núna loksins höfum við fundið lása sem okkur líður vel með að selja, þeir eru ekki þeir ódýrustu en við erum viss um að þeir eru með þeim betri.

Þegar þú kaupir snjalllás þarft þú að gera upp við þig hvaða virkni þú sækist eftir:
– Fingrafaralesara
– PIN númer
– Kortalesara
– Símaopnun
– Dyrabjöllu með myndavél
– Allt þetta eða jafnvel meira…

Snjalllásar sem eru vinsælir hjá okkur eru Prolock, Easy2Access og Tedee.

Hér er smá kynning sem má hafa í huga:

Hér er slóð á vefverslunina með snjalllása



Annað

Það er mikið úrval og margt gott, en það er hellingur að varast og þá má fyrst nefna Ali-síðurnar, þar er svo margt sem ekki virkar hér heima en samt kemur fólk hingað til okkar og biður um uppsetningu á þeim búnaði -við getum því miður ekki orðið við svoleiðis beiðnum því við viljum ekki eiga þátt í að breyta hurð fyrir búnað sem virkar mögulega bara í stutta stund eða ekki eins og sóst var eftir.

Aðal málið er, EKKI kaupa flottasta, eða ódýrasta, snjalllásinn til að setja á íbúðina þína, þú gætir verið að skilja íbúðina eftir nær opna í hvert skipti sem þú ferð út. Skoðaðu snjallása sem henta hurð og læsingu sem þegar er í hurðinni, úrvalið er mjög mikið, aðeins með réttum snjalllás er íbúðin örugg. Að hugsa sig vel um, hvað það er sem maður vill, fá ráð og velja eitthvað sem hægt er að þjónusta hér á landi